STF logo
STF logo

Ævintýri í Jólaskógi

Töfrandi vasaljósaganga fyrir alla fjölskylduna í Guðmundarlundi

Þegar rökkva tekur, lifnar Jólaskógurinn við.

Gestir leggja af stað með vasaljós að vopni inn í dimman og ævintýralegan skóg þar sem ýmsar furðuverur leynast á milli trjánna. Á leiðinni verða á vegi þeirra kunnuglegar persónur úr uppáhalds jólafjölskyldu okkar Íslendinga – Grýla, Leppalúði, jólasveinarnir og tröllasystkini þeirra.

Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng leikhúsupplifun undir berum himni þar sem áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í Guðmundarlundi, vopnaðir vasaljósum. Náttúran, myrkrið og jólaljósin verða hluti af leiksviðinu og enginn veit alveg hvað bíður handan við næsta tré.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að skyggja. Ferðalagið um skóginn er varðað jólakúlum, luktum og öðru jólaskrauti sem vísar áhorfendum veginn í gegnum ævintýrið.

Eftir stutta göngu kemur hópurinn að fyrsta „sviðinu“ þar sem einn íbúa Grýluhellis tekur á móti gestum og segir þeim litla jólasögu. Sögurnar fjalla um ævintýri tröllafjölskyldunnar, lífið í Grýluhelli og jól fyrr og nú. Hver saga er tæpar tíu mínútur og að henni lokinni heldur hópurinn áfram inn í skóginn í leit að næsta ævintýri.

Alls eru fjögur „svið“ í skóginum og fjórar ólíkar sögur, fluttar af íbúum Grýluhellis. Ferðalagið tekur tæpan klukkutíma og að því loknu geta gestir fengið mynd af sér með jólasveini og yljað sér við heitt kakó og piparkökur.

Ævintýri í Jólaskógi

Nýtt ævintýri á hverju ári

Ævintýri í Jólaskógi var fyrst sett upp fyrir jólin 2020 og er þetta því sjöunda árið sem gestum er boðið í vasaljósagöngu um Guðmundarlund.

En þó hefðin sé orðin sjö ára gömul er sýningin ný á hverju ári.

Á hverju ári eru samdar nýjar sögur og ný ævintýri bíða gesta í skóginum. Þeir sem hafa heimsótt Jólaskóginn áður geta því komið aftur ár eftir ár og aldrei vitað fyrirfram hvað Grýla, Leppalúði, jólasveinarnir og tröllasystkini þeirra hafa brallað í þetta sinn.

Verkið er eftir Önnu Bergljótu Thorarensen og er það hún, ásamt Andreu Ösp Karlsdóttur, Grímu Kristjánsdóttur, Hafsteini Níelssyni, Hlyni Þorsteinssyni, Sigsteini Sigurbergssyni, Snædísi Ingadóttur, Sólveigu Guðmundsdóttur og Stefáni Benedikt Vilhelmssyni, sem bera ábyrgð á því að jólasveinafjölskyldan skili sem bestu verki.

Gott að vita áður en lagt er af stað

Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig vel eftir veðri, koma í góðum skóm og taka með sér vasaljós. Sýningin fer öll fram utandyra og þessi atriði eru nauðsynleg til að njóta ferðalagsins til hins ýtrasta.

Við mælum með sýningunni fyrir fjögurra ára og eldri, en að sjálfsögðu eru allir velkomnir. Leiðin um skóginn er ekki fær barnakerrum og því þarf að halda á yngstu börnunum ef þau koma með í för.

Frítt er fyrir börn tveggja ára og yngri og því þarf ekki að bóka miða fyrir þau.

Við biðjum gesti að skilja hunda eftir heima, bæði svo þeir trufli ekki sýninguna og af tillitssemi við aðra gesti.

Almennt miðaverð: 4.900 kr. á mann.

Klæðið ykkur vel, grípið vasaljósið og komið með okkur inn í Jólaskóginn.

Ævintýrið bíður í myrkrinu…

Smelltu hér til að kaupa miða